1 / 8

Nánari lýsing

Laus til leigu glæsileg 3ja herbergja íbúð í Garðabæ! Velkomin inn í nýtt og vandað 74,4 fm heimili að Eskiás 4, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á annarri hæð utanhúss. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum. Nánari lýsing Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp, komið er inn í opið og skemmtilegt rými þar sem eldhús og stofa mynda sameignilegt alrými. Gengið er út á svalir úr stofu, eldhúsið er með miklu skápaplássi og fallegri eyju upp við vegg. Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 3,7 fm geymsla er innan íbúðar en einnig er hægt að nýta rými undir stiga sem geymslurými. Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni. Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp. Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin. Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 379.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli. Sækja þarf um íbúð á heimasíðu Ivera.is :https://www.ivera.is/leita-ad-ibud/gardabae-744fermetrar-s5-ibu-0002xs Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is.

Upplýsingar

Viðskipti
Til leigu
Tegund
Íbúðir
Herbergi
3
Stærð (m²)
74.4
Hæð
2. hæð
Tegund byggingar
Fjölbýlishús
Byggingarár
2023
Laust frá
Laust strax
Ástand eignar
Tilbúið til afhendingar
Fylgir eigninni
Dýr leyfð, Svalir

Sambærilegar auglýsingar