Verðskrá Loks

Allar tölur koma úr kerfinu og uppfærast um leið og við breytum þeim.

Verðin eru endanleg. Seljandi er ekki á VSK-skrá, því er ekki lagður VSK á

Kynningar á auglýsingum

Birtu frítt. Auktu sýnileika þegar þú þarft hann.

Með auknum tíma

Ef auglýsingin er enn í gildi og fær færri en 300 gildar birtingar á 7 dögum bætum við einu sinni við 72 klukkustundum á forsíðunni og einni færslu ofar. Þetta er tími, ekki lofuð sala.

Hvenær byrjar kynningin?

Um leið og greiðslan er staðfest. Dagsetningar verða þá raunverulegar.

Get ég slökkt á sjálfvirkri endurnýjun?

Hún er sjálfgefið óvirk og þú kveikir á henni sjálf eða sjálfur.

Spurt og svarað

Kostar að setja inn auglýsingu?

Venjulegar auglýsingar eru ókeypis. Ef gjald á við um flokk eða þjónustu sérðu gildandi verð áður en þú staðfestir.

Hvar sé ég gildandi verð?

Verðskráin og staðfestingarskjárinn sýna gildandi verð. Keypt þjónusta heldur skilmálunum sem giltu þegar hún var keypt.

Eru takmörk á birtingu?

Já. Takmörk gilda um fjölda virkra auglýsinga og birtingar á klukkustund og sólarhring. Þú sérð skilaboð ef þú nærð gildandi mörkum.

Breytir greidd kynning venjulegri röðun?

Nei. Kostaðar staðsetningar eru merktar sérstaklega. Auglýsingin heldur jafnframt sínum venjulega stað í niðurstöðunum.